flugfréttir
Handboltalandsliðið á HM í Þýskalandi með Icelandair
Á myndinni er landsliðið að kveðja áður en gengið er um borð í Boeing 757-300 þotu Icelandair sem nefnist „Þingvellir“
Icelandair flaug í morgun beint frá Keflavíkurflugvelli til München í Þýskalandi með karlalandslið Íslands í handbolta.
Á myndinni er landsliðið að kveðja áður en gengið er um borð í vél Icelandair sem nefnd hefur verið „Þingvellir“ en hún hefur verið máluð í fánalitunum og ber merki 100 ára afmælis fullveldis Íslands.
Þetta er önnur Boeing 757-300 vélin sem Icelandair tók í notkun á síðasta ári en þessar vélar eru nokkuð lengri og taka fleiri farþega en Boeing 757-200 vélarnar sem flestir þekkja.
Icelandair var með til sölu pakkaferðir á HM, annars vegar flug og miða á þrjá leiki og hins vegar á fimm leiki.
Uppselt er í ferðirnar og má því búast við lífi og fjöri í flugi Icelandair í næstu viku þegar landsmenn halda út til Þýskalands til að styðja landsliðið okkar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.