flugfréttir
Brasilía gefur grænt ljós fyrir samstarfi Boeing og Embraer
Boeing mun taka yfir sölu á Embraer-farþegaþotunum og eignast 80% í framleiðslunni
Ríkisstjórnin í Brasilíu hefur gefið grænt ljós fyrir samstarfi Boeing og Embraer þar í landi en flugvélaframleiðendurnir stefna á samstarf í framleiðslu á farþegaþotum og einnig á flugvélum fyrir hernað.
Samþykkið kemur eftir að dómari í Brasilíu hafði tvisvar hafnað beiðninni á grundvelli þess að samstarfið
gæti skapað óstöðugleika á vinnumarkaði gagnvart verkalýðsfélögum í Brasilíu og einnig af ótta
við uppsagnir í verksmiðjum Embraer.
Núna hefur samstarfið hefur verið samþykkt og mun Boeing eignast 80 prósent í farþegaþotuframleiðslu Embraer
á meðan Embraer mun halda 20 prósentunum og þá mun Boeing taka yfir 49% í framleiðslu á KC-390
herflutningavélinni sem fyrst var framleidd árið 2014.
Með samstarfinu verður sala og markaðsenting á Embraer-þotunum aukin til muna og mun þotan
því standa mun betur að vígi gagnvart samkeppnisflugvél Airbus sem er Airbus A220 sem upphaflega var
hönnuð og smíðuð af Bombardier.
„Boeing og Embraer þekkja hvort annað mjög vel og hafa átt í samstarfi í meira en tvo áratugi“, segir Dennis
Muilenburg, framkvæmdarstjóri Boeing, og í sama streng tekur Paulo Cesar de Souza e Silva, framkvæmdarstjóri
Embraer, sem telur að samvinnan eigi eftir að koma brasilískum flugvélaiðnaði til góða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.