flugfréttir
Airbus A220 fær fjarflugsleyfi og vottun fyrir ETOPS 180
ETOPS 180 vottunin kynnt formlega í höfuðstöðvum Bombardier í Mirabel
Airbus A220 þotan, sem einnig er þekkt sem CSeries frá Bombarider, hefur fengið fjarflugsleyfi (ETOPS) upp á 180 mínútur sem þýðir að þotan mun með því fá leyfi til þess að fljúga og vera í allt að 3 klukkustunda fjarlægð frá næsta viðurkennda varaflugvelli.
Það eru flugmálayfirvöld í Evrópu (EASA), í Kanada og í Bandaríkjunum (FAA) sem veita Airbus A220 þotunni
leyfið en þetta er í fyrsta sinn sem farþegaþota, sem framleidd er í Kanada, fær fjarflugsleyfi upp á 180 mínútur.
Með þessu mun Airbus A220 þotan geta flogið beinni leið yfir afskekt landsvæði og úthöf og getur flugvélin með því flogið
milli Honolulu og Los Angeles, milli London og New York og milli Seoul og Darwin í Ástralíu.
Rob Dewar, yfirmaður yfir verkfræði- og þjónustudeild Airbus A220 , segir að þotan sé sú eina sem framleidd
er í dag í þessum flokki sem bæði hefur ETOPS 180 vottun og leyfi til að fljúga bratt aðflug en þessir eiginleikar
opna ýmiss ný tækifæri fyrir þau flugfélög sem hafa A220 í flotanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.