flugfréttir

Keilir eignast Flugskóla Íslands

- Samanlagður fjöldi nemenda á fimmta hundrað og á þriðja tugi kennsluvéla

17. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 10:05

Báðir flugskólarnir hafa á þriðja tug kennsluflugvéla í flota sínum af gerðinni Diamond, Cessna og Piper

Flugakademía Keilis hefur fest kaup á Flugskóla Íslands en skólarnir eru þeir stærstu á landinu er kemur að flugkennslu og þjálfun nemenda í flugtengdum greinum.

Tilkynnt var um kaupin í morgun og kemur fram að samanlagður fjöldi nemenda í bóklegu og verklegu námi í flugskólunum tveimur séu vel á fimmta hundrað.

Við kaupin verður til stærsti flugskóli landsins sem verður einn af þeim stærstu á Norðurlöndunum með tilliti til fjölda kennsluflugvéla og nemenda.

„Við erum afskaplega ánægðir með kaupin og teljum þau styrkja mjög flugkennslu á landinu. Flugakademía Keilis er ung að árum en hefur vaxið hratt og mun sú mikla reynsla og þekking stjórnenda og kennara Flugskóla Íslands hafa jákvæð áhrif á það starf sem við höfum byggt upp undanfarin ár,“ segir Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíu Keilis.

Flugskóli Íslands var stofnaður sumarið 1998 og hefur skólinn verður leiðandi á sviði kennslu og þjálfunar í flugi, bæði er kemur að einkaflugmannsnámi, atvinnuflugmannsnámi samkvæmt reglugerðum EASA.

Flugakademía Keilis var stofnuð fyrir 10 árum síðan eða árið 2008 og hefur skólinn vaxið hratt á sl. árum í Ásbrú í Reykjanesbæ í tengslum við öran vöxt flugfélaganna undanfarin ár.

Frá undirritun samningsins vegna kaupanna á Flugskóla Íslands

„Það er auðvitað ákveðin eftirsjá eftir að hafa rekið flugskóla í hartnær þrjátíu ár en við teljum þessi kaup afar jákvæð. Með öflugum og traustum skóla verður hægt að stuðla að áframhaldandi vexti og þróun flugnáms á Íslandi og auka samstarf við flugrekendur,“ segir Baldvin Birgisson, skólastjóri Flugskóla Íslands.

Fyrst um sinn verður ekki gert ráð fyrir miklum breytingum á starfsemi skólanna, en áfram mun verkleg flugkennsla fara fram á bæði alþjóðaflugvellinum í Keflavík og Reykjavíkurflugvelli, auk þess sem skólinn mun efla starfsstöðvum á landsbyggðinni líkt og unnið hefur verið að undanfarið, meðal annars á Selfossi og á Sauðárkróki.

Gríðarleg ásókn hefur verið í flugnám hjá báðum skólunum að undanförnu og hefur verið fullt í nýja bekki með töluverðum fyrirvara fyrir skólasetningu vegna vinsælda námsins og þá sérstaklega í samtvinnuðu atvinnuflugmannsnámi.

Flugakademía Keilis naut ráðgjafar KPMG vegna viðskiptanna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga