flugfréttir
Ellefta veggspjaldið fjallar um skort á vitund
- The Dirty Dozen: Lack of Awareness
Ellefta „Dirty Dozen“ veggspjaldið fjallar um „Lack of Awareness“
Samgöngustofa hefur gefið út ellefta og næstsíðasta kynningarspjaldið í Dirty Dozen seríunni sem fjallar um nokkur atriði sem ber að hafa í huga er kemur að flugöryggi.
Ellefta spjaldið fjallar um árverkni eða vitundarskort sem á ensku nefnist „Lack of Awareness“ og þær leiðir sem hægt
er að fara til að bregðast við því.
Meðal atriða sem mælt er með að hafa í huga til að koma í veg fyrir vitundarskort er m.a. að hugsa áður en þú
framkvæmir og hafa vökult auga fyrir augljósum hættum, tileinka sér að vera vakandi fyrir því sem er
að gerast og muna að ef eitthvað virðist vera í ólagi þá yfirleitt reynist það vera svo.
„The Dirty Dozen“ er listi yfir tólf algengustu mannlegu þættina sem leitt geta til slysa eða atvika í flugtengdri starfsemi en hugmyndin að „The Dirty Dozen“ listanum kemur frá Gordon DuPont sem tók hann saman árið 1993 þegar hann starfaði hjá Transport Canada.
DuPont nýtti listann við þjálfun og fræðslu til flugvirkja á mannlega þættinum og hefur síðan verið notaður um allan heim. Listinn vísar einnig til veggspjaldaherferðar „The Maintenance And Ramp Safety Society (MARSS) sem veggspjöld Samgöngustofu byggja á.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.