flugfréttir
Stendur ekki til að hætta að framleiða Airbus A319
- Airbus A220 selst mun betur heldur en A319neo
Airbus A319 kom fyrst á markað árið 1996
Airbus A319 þotan verður framleidd áfram af Airbus þrátt fyrir að eftirspurn eftir henni hefur ekki verið mikil en aðeins hafa fjögur flugfélög pantað 55 eintök af nýju A319 þotunni samanborið við 4.176 eintök af Airbus A320neo.
Margir hafa spáð því að Airbus myndi ákveða að hætta við A319neo eftir kaupin á framleiðslunni á CSeries-þotunni
sem fékk nafnið Airbus A220 eftir kaupin.
Airbus A319 er næstminnsti meðlimurinn í A320 fjölskyldunni og kom hún á markað árið 1996 og hafa
yfir 1.400 eintök verið smíðuð af Airbus A319 á 22 árum sem hún hefur verið í framleiðslu.
„Það verða færri pantanir í Airbus A319 með tilkomu Airbus A220 - en við munum samt sem áður
halda áfram að bjóða upp á hana“, segir Guillaume Faury, forstjóri yfir farþegaþotudeild Airbus.
Tom Enders, framkvæmdarstjóri Airbus, gaf í skyn árið 2017 að sennilega myndi Airbus A319 hverfa af
markaðnum með tilkomu yfirtöku á CSeries-þotunni frá Bombardier og tók hann fram að þá hafði
Airbus ekki selt eitt eintak af Airbus A319 í fimm ár.
Airbus segir að A319 verði enn á boðstólnum í einhver ár og að minnsta kosti þar til að áhrif Airbus A220
koma í ljós.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.