flugfréttir
Alitalia hættir við A321neo þoturnar þrjár frá Primera Air
Ein af Airbus A321neo þotunum þremur komin á ítalska skráningu
Ítalska flugfélagið Alitalia hefur hætt við að taka við þremur Airbus A321neo þotum sem áður voru í flota Primera Air.
Primera Air, sem varð gjaldþrota í október, var búið að fá fimm Airbus A321neo þotur og gerði flugfélagið
ítalska samning í nóvember sl. um að fá þrjár af þeim þotum í flotann sinn í þessum mánuði en þoturnar
eru í eigu flugvélaleigunnar Aviation Capital Group (ACG).
Alitalia ætlaði að skipta þremur Airbus A321 þotum, sem eru orðnar um 22 ára gamlar, út fyrir nýju
A321neo þoturnar sem eru mun sparneytnari en með því stóð til að lækka rekstrarkostnað félagsins.
Samningar hafa hinsvegar ekki náðst að fullu um leigu á þotunum þremur en nú þegar er búið að undirbúa
þær fyrir að vera málaðar í litum Alitalia og hafa þær fengið ítalska skráningu.
Altialia hefur ekki formlega lýst því yfir að A321neo þoturnar þrjár séu ekki að koma í flotann en talið
er að félagið eigi yfir höfði sér sekt fyrir að hafa skráð þotur á ítalska skráningu og slitið síðan leigusamningum.
Fram kemur að stjórn Alitalia hafi skyndilega tekið þá ákvörðun að skynsamlegast væri að taka ekki við þotunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.