flugfréttir
Mahan Air meinað að fljúga til Þýskalands
Airbus A300 þota Mahan Air
Stjórnvöld í Þýskalandi hafa ákveðið að banna allt flug á vegum íranska flugfélagsins Mahan Air til landsins.
Christofer Burger, utanríkisráðherra Þýskalands, segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin í þeim tilgangi
að vernda pólitíska hagsmuni landsins auk öryggis.
Burger segir að Mahan Air sjái meðal annars um að fljúga með hernaðargögn og herlið til ýmissa stríðshrjáðra svæða
í heiminum á borð við Sýrland og fordæmi Þýskaland stefnu Írans í ýmsum utanríkismálum.
Þá hefur Bandaríkjastjórn lengi sett þrýsting á þýsk stjórnvöld til þess að sniðganga Mahan Air á þeim forsendum
að flugfélagið styðji við bakið á uppreisnarhreyfingunni í Íran.
Mahan Air flýgur ekki neitt áætlunarflug til Þýskalands en áfangastaðir félagsins í Evrópu eru m.a. París, Aþena og
Barcelona.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.