flugfréttir

Þrisvar var drónum flogið nálægt Airbus A380 á Heathrow

- Mikil árekstrarhættu í tveimur tilvikum

23. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:41

Atvikin þrjú áttu sér stað frá júlí fram í september og er aðeins um að ræða tilvik þar sem drónum var flogið nálægt Airbus A380 risaþotunni

Þrisvar sinnum komu upp atvik á tveggja mánaðartímabili í fyrra þar sem dróna var flogið í veg fyrir Airbus A380 risaþotur í nágrenni við Heathrow-flugvöll.

Þetta kemur fram í nýútgefinni skýrslu á vegum UK Airprox sem birt var á dögunum en þegar minnstu munaði er talið að aðeins 20 metrar hafi skilið í sundir dróna og risaþotu.

Fyrst ber að nefna atvik þann 22. júlí í fyrra er dróni var 20 metrum frá því að rekast á Airbus A380 risaþotu í 3.400 feta hæð í lofthelginni yfir Heathrow-flugvelli er þotan var í ILS-blindaðflugi að braut 27R.

Tólf dögum síðar, þann 4. ágúst, var önnur A380 þota sem var í aðflugi að Heathrow þegar flugmenn vélarinnar komu auga á dróna sem fór framhjá þeim í 4.200 fetum en þá voru þeir nýbúnir að grípa aðflugsgeisla að braut 27L. Talið er að í það skiptið hafi 60 metrar verið á milli drónans og þotunnar en bæði tilvikin hafa verið flokkuð sem alvarleg atvik þar sem mikil hætta var á árekstri.

Þá ber að nefna þriðja atvikið sem átti sér stað 29. september sl. í nágreinni við Holmer Green í um 27 kílómetra fjarlægð norðvestur af Heathrow en þar átti í hlut Airbus A380 risaþota sem var í klifri eftir flugtak frá LHR þegar flugmenn komu auga á dróna í um 50 metra fjarlægð fyrir framan þá en talið er að lóðréttur aðskilnaður hafi verið 200 fet.

Þegar það atvik átti sér stað höfðu aðeins fjórir dagar liðið frá því að dróni flaug nálægt Boeing 787 þotu í 9.000 fetum en flugstjóri þotunnar kom auga á lítið, silfurlitað fyrirbæri sem fór framhjá þeim rétt fyrir neðan vinstri væng og er talið að 150 fet hafi skilið þann dróna frá væng vélarinnar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga