flugfréttir

Hraðleið í starf atvinnuflugmanns hjá SunExpress

- Samningur gerður um "Fast Track to First Officer Program" verkefni

25. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 09:15

Boeing 737 þota SunExpress

Flugakademía Keilis og SunExpress hafa gert með sér samkomulag um að nemendur skólans hafi greiðari aðgang að atvinnuflugmannsstarfi á Boeing 737 þotur flugfélagsins.

Um hraðleið er að ræða "Fast Track to First Officer Program" sem er opin fyrir bæði núverandi og útskrifaða nemendur Flugakademíu Keilis og nýtist sér í lagi þeim nemendum sem hafa fáa flugtíma að baki til að komast í starf atvinnuflugmanns hjá SunExpress.

Samkvæmt samkomulaginu fá nemendur í þjálfun laun frá fyrsta degi, auk þess sem flugfélagið sér nemendum fyrir gistiaðstöðu.

Kynningarfundur með SunExpress

Upplýsingafundur með SunExpress fer fram í aðalbyggingu Flugakademíu Keilis að Grænásbraut 910 á Ásbrú í Reykjanesbæ, þriðjudaginn 5. febrúar kl. 14:00. Áhugasömum er bent á að skrá þátttöku á fundinn hér þar sem um takmarkað sætaframboð er að ræða.

SunExpress er rekið í samstarfi Turkish Airlines og Lufthansa, bæði stór flugfélög á heimsvísu. Flugfélagið starfrækir alls 61 Boeing 737NG farþegaþotur og sjö Airbus A330 frá starfsstöðvum á Antalya, Izmir, Ankara og Istanbul.

Lykilupplýsingar

- Hraðleið úr flugnema í atvinnuflugmann
- Nútímavæddur flugvélakostur (Boeing B737 og Airbus A330)
- Launuð starfsþjálfun
- Þú ræður hvernig framhaldinu er háttað (self-sponsored type rating or training bond)
- Fjölbreytt leiðakerfi og áfangastaðir
- Starfsmannaafsláttur á Star Alliance flugleiðum (90% afsláttur af farmiðum)

Fulltrúar SunExpress verða á fundinum og munu svara spurningum þátttakenda. Nemendur eru beðnir um að mæta í einkennisbúning skólans eða viðeigandi fatnaði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga