flugfréttir
Flugvöllur á Spáni leitar eiganda að yfirgefinni þotu
- 29 ára gömul MD-87 þota hefur verið yfirgefin í níu ár á flugvellinum í Madríd
Ekki er vitað í hversu langan tíma þotan hefur staðið á flugvellinum í Madríd
Yfirvöld á Spáni reyna nú að hafa uppi á eiganda að farþegaþotu af gerðinni McDonnell Douglas MD-87 sem hefur verið yfirgefin á Barajas-flugvellinum í Madríd í 9 ár.
Þotan, sem er 29 ára gömul, framleidd árið 1990, ber skráninguna EC-KRV og var hún upphaflega afhent til Iberia
á sínum tíma en árið 2008 fór hún til Pronair og tveimur árum síðar tók spænska flugfélagið Saicus Air við henni.
Fram kemur að eigandi þoturnnar hafi augljóslega skilið hana eftir án þess að vitja hennar í nokkurn tíma en hún var
aðeins í nokkrar vikur í rekstri hjá Saicus Air í enda ársins 2010 sama ár og félagið hætti starfsemi.
Þotan missti flughæfnisvottunina um mitt árið 2015 og hafa eigendunum verið send að undanförnu nokkur viðvörunarbréf
á þriggja mánaða fresti en ef engin vitjar þotunnar á næstu 12 mánuðum verður flugvélin skráð sem „yfirgefin“
samkvæmt lögum og verður hún þá seld á uppboði.
Þotan er sjáanleg á Google Maps í stæði á svæði syðst á Madrid Barajas:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.