flugfréttir
ANA ætlar að panta 48 þotur frá Boeing og Airbus
Afhendingar munu hefjast árið 2021 og standa yfir til ársins 2025.
Japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) ætlar sér að leggja inn pöntun bæði til Boeing og Airbus í alls 48 farþegaþotur.
Stjórn ANA Holdings hefur gefið leyfi fyrir pöntunaráætlun í þrjátíu Boeing 737 MAX 8 þotur fyrir All Nippon Airways og átján Airbus A320neo þotur fyrir dótturfélagið Peach.
ANA mun nota Boeing 737 MAX 8 þoturnar til að leysa af hólmi á fimmta tug Boeing 737-800 flugvéla
sem félagið notar aðallega í innanlandsflugi en Peach mun bæta Airbus A320neo þotunum átján við flotann sinn
sem mun stækka með tilkomu þeirra.
Pöntunin er metin á 1.99 milljarð bandaríkjadala sem samsvarar 238 milljörðum króna og munu afhendingar hefjast árið 2021 og standa yfir til ársins 2025.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.