flugfréttir

Spáð 8 prósent færri farþegum um Keflavíkurflugvöll í ár

- Heildarfjöldi farþega er þó enn umfram þá langtímaspá

30. janúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 21:02

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, í opnunarræðu sinni í gær er farþgeaspá Isavia fyrir Keflavíkurflugvöll var kynnt

Í gær var kynnt ný farþegaspá um fjölda farþega sem fer um Keflavíkurflugvöll árið 2019 á morgunfundi Isavia á Hilton Reykjavík Nordica.

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, sagði í opnunarræðu sinni að Isavia hefði síðan árið 2015 birt spá um fjölda farþega og vanalega í lok nóvember. Spánni fyrir 2019 hafi hins vegar seinkað vegna óvissu á markaði. „Við teljum þó stöðuna hafa skýrst umtalsvert undanfarið og erum við tilbúin að setja fram okkar sýn fyrir árið 2019,“ sagði Björn Óli.

Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar, kynnti farþegaspá Isavia. Í erindi hans kom fram að spáin geri ráð fyrir að 8,9 milljón farþegar fari um Keflavíkurflugvöll í ár, samanborið við 9,8 milljónir í fyrra sem er 8,7% fækkun. Heildarfjöldinn í spánni fyrir 2019 er tæplega 200 þúsund fleiri en fóru í gegnum Keflavíkurflugvöll allt árið 2017.



Í spánni fyrir 2019 er mest fækkunin í skiptifarþegum, en talið er að þeim muni fækka um 18,7% frá fyrra ári. Það skýrist helst af því að áfangastaðir munu að öllum líkindum fækka, sem og tíðni ferða til vissra áfangastaða. Þá hefur sætaframboð flugfélaganna áhrif á tengimöguleikana sem og farþegafjöldann.

Brottfararfarþegum fækkar hins vegar minna. Athygli vekur að komu- og brottfararfarþegum fjölgar yfir sumarmánuðina frá árinu 2018. Í júní verða þeir um 4% fleiri en á sama tíma í fyrra, þeim fjölgar um 5,7% í júlí og að lokum um 7,2% í ágúst. Þá gerir farþegaspáin ráð fyrir að komu- og brottfararfarþegum fjölgi í nóvember um 1,7% og í desember um 4,6%.

Í erindi Hlyns var einnig vísað í þá langtíma farþegaspá sem gerð var í tengslum við þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar árið 2015. Þar kom fram að þrátt fyrir fækkun í ár þá sé fjöldi ferðamanna enn langt yfir langtímaspánni sem gerð var fyrir tæpum fjórum árum.

Hlynur vék einnig að uppbyggingarþörf á Keflavíkurflugvelli til að mæta þeim fjölda farþega sem áætlað er að fari um flugvöllinn í ár. Þar kom fram að til þess að betur væri hægt að þjónusta farþegafjöldann sem nú þegar fari í gegnum Keflavíkurflugvöll, þurfi að bæta um 10 þúsund fermetrum við flugstöðina og er fyrirhuguðum framkvæmdum ætlað að mæta því.

Hlynur fór einnig yfir niðurstöður alþjóðlegrar þjónustukönnunar – ASQ Survey – þar sem ánægja farþega er meiri milli ára þrátt fyrir uppbyggingaþörfina. Fer Keflavíkurflugvöllur úr 27. sæti árið 2017 í 17. sæti fyrir árið 2018. Um 110 flugvellir í Evrópu eru í ASQ þjónustukönnuninni.

Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, ræddi í erindi sínu um ný lög um Íslandsstofu og breytt skipulag á samstarfsvettvangi atvinnulífs og stjórnvalda. Hann ræddi viðhorf erlendra ferðamanna gagnvart áfangastaðnum Íslandi og áhuga þeirra á íslenskum vörum.

Flugið hefur opnað markaði og fjölgað viðskiptatækifærum innanlands, hvort sem um er að ræða vörur, þjónustu eða fjárfestingar. Til að mynda hafi útflutningur á ferskum fiski til Bandaríkjanna nánast þrefaldast frá árinu 2009 og má þakka betri og örari flugsamgöngum til og frá Bandaríkjunum fyrir það.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga