flugfréttir
Ferðakaupstefnan Icelandair Mid-Atlantic fór fram í gær
- Yfir 5.000 fundir fóru fram á vegum ferðaþjónustuaðila
Í tæpa þrjá áratugi hefur Icelandair Mid-Atlantic fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur í tengslamyndum ferðaþjónustuaðila
Ferðakaupstefnan Icelandair Mid-Atlantic fór fram í Laugardalshöll í gær, föstudaginn 1. febrúar. Þetta er í 27. skipti sem Icelandair stendur fyrir ferðakaupstefnunni sem er sú stærsta sem haldin er hér á landi og orðin að lykilviðburð í íslenskri ferðaþjónustu. Tilgangur ferðakaupstefnunnar er að tengja saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu, bæði innlenda og erlenda.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs, heimsóttu fulltrúa ferðakaupstefnunnar í dag ásamt öðrum hagsmunaraðilum í ferðaþjónustu.
Alls voru um 700 þátttakendur á Icelandair Mid-Atlantic í ár og koma þeir frá 21 landi. Yfir 100 íslensk fyrirtæki víðs vegar að af landinu kynntu starfsemi sína ásamt aðilum beggja megin Atlantshafsins á áfangastöðum Icelandair.
„Í tæpa þrjá áratugi hefur Icelandair Mid-Atlantic fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur í tengslamyndum ferðaþjónustuaðila, bæði hér á landi og ekki síður í Evrópu og Norður Ameríku. Margir og ólíkir aðilar nýta Icelandair Mid-Atlantic til að ýmist kynna þjónustu sína og vöru og aðrir til þess að kaupa þjónustu af þeim fyrirtækjum sem hér eru“, segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group.
Alls voru um 700 þátttakendur á Icelandair Mid-Atlantic í ár og koma þeir frá 21 landi
Við erum stolt af þeim árangri sem við höfum náð á undanförnum árum við að byggja Ísland upp sem spennandi áfangastað allt árið um kring. Því er mikilvægt að halda áfram öflugu markaðsstarfi og myndun tengsla beggja megin Atlantshafsins. Þar hefur Icelandair lagt mikið af mörkum í gegnum árin, bæði með því að tengja farþegar yfir hafið sem og viðskiptaaðila.“, bætir Bogi Nils við.
Alls komu hingað til lands fulltrúar frá yfir 300 erlendum fyrirtækjum til að vera viðstaddir ferðakaupstefnuna. Settir voru upp um 240 sölubásar og í þeim fóru fram yfir 5.000 skipulagðir fundir á milli viðskiptaaðila, auk annarra óformlegri funda.
Fyrir utan hefðbundin ferðaþjónustufyrirtæki eru opinber ferðamálaráð ýmissa þeirra svæða og borga sem Icelandair flýgur til í Norður-Ameríku og Evrópu þátttakendur á kaupráðstefnunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.