flugfréttir
Þýska flugfélagið Germania gjaldþrota
- Flaug meðal annars til Íslands frá þremur borgum
Airbus A319 þota Germania
Þýska flugfélagið Germania er gjaldþrota en félagið aflýsti í gær öllum flugferðum sínum og hefur stjórn félagsins farið fram á að reksturinn verði tekinn til gjaldþrotaskipta.
Gjaldþrotið nær einnig yfir viðhaldsfyrirtækið Germania Technik Brandenburg en rekstur Germania Flug í Sviss og systurfélagsins Bulgarian Eagle mun halda áfram í óbreyttri mynd.
Í tilkynningu frá Germania kemur fram að ástæðu gjaldþrotsins megi rekja til mikillar hækkunar á eldsneytisverði sl. sumar, veikrar stöðu evrunnar gagnvart Bandaríkjadollara auk seinkunnar á innleiðingu á nýjum og sparneytnari flugvélum.
Germania hafði 36 þotur í flota sínum af gerðinni Airbus A319, Airbus A321 og Boeing 737-700. Félagið flaug til 24 áfangastaða en þar á meðal hafði félagið flogið til Keflavikur frá Dresden, Bremen og Nuremberg.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.