flugfréttir
Turkmenistan Airlines bannað að fljúga til Evrópu
Boeing 757-200 þota Turkmenistan Airlines
Turkmenistan Airlines hefur verið bannað að fljúga til Evrópu en evrópsk flugmálayfirvöld hafa bætt flugfélaginu við á bannlista yfir þau félög sem fá ekki að fljúga til Evrópu.
Fram kemur að Turkmenistan Airlines uppfylli ekki þær kröfur sem gerðar eru til flugfélaga til þess að fá að
fljúga til Evrópu en félagið hefur m.a. flogið til London Heathrow og til Birmingham.
Þar af leiðandi mun félagið einnig fella niður flug milli Ashgabat og Nýju-Delhí en fjölmargir farþegar frá Indlandi
flugu með félaginu til þess að halda áfram með tengiflugi til Bretlands.
Turkmenistan Airlines hafði notað Boeing 757-200 þotur í fluginu til London en félagið flýgur einnig til Istanbúl
og til Moskvu en bannið hefur ekki áhrif á þær flugferðir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.