flugfréttir

Southwest flýgur tilraunaflug til Hawaii

5. febrúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:05

Boeing 737-700 þota Southwest Airlines

Bandaríska flugfélagið Southwest Airlines flaug í dag sitt fyrsta flug til Hawaii-eyja en ekki er um áætlunarflug að ræða heldur sérstakt tilraunaflug og eru engir farþegar um borði í vélinni.

Meðal þeirra sem eru um borð í fugvélinni, sem er af gerðinni Boeing 737-700, eru öryggisfulltrúar frá bandarískum flugmálayfirvöldum en þotan fór í loftið frá flugvellinum í Oakland í Kaliforníu áleiðis til Honolulu og er flugið hluti að því að fá leyfi fyrir farþegaflugi til eyjaklasans.

Tilgangurinn er að gera prófanir með langflug með Boeing 737-800 þar sem fjarskiptabúnaður og drægi ratsjárkerfis verður athugaður sem er hluti að fjarflugsleyfi (ETOPS) sem félagið mun fá úthlutað en slíkt er krafist af flugfélögum sem fljúga langa flugleið yfir sjó.

Southwest Airlines tilkynnti fyrst í október árið 2017 að verið væri að undirbúa áætlunarflug til Hawaii en meðal þeirra bandarísku flugfélaga sem fljúga í dag til Hawaii eru American Airlines, Alaska Airlines, Delta Air Lines, United Airlines, Sun Country Airlines og Hawaiian Airlines.

Southwest Airlines á von á því að fá leyfi fyrir flugi til Hawaii síðar á þessu ári en vinnustöðvun meðal opinberra stofnanna í Bandaríkjunum hefur seinkað áformum félagsins fyrir flugi til Hawaii.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga