flugfréttir
Brotlenti á götu í miðborg Lima
- Engann sakaði er kennsluflugvél á vegum flughersins kom niður á bílastæði
Slysið átti sér stað sl. mánudag í Lima, höfuðborg Perú
Engan sakaði er lítil, eins hreyfils flugvél brotlenti á verslunargötu í miðborg Lima, höfuðborg Perú, sl. mánudag.
Flugvélin, sem var af gerðinni AMD Alarus CH2000, var í þjálfunarflugi á vegum
flughersins í Perú með tvo innanborðs en talið er að flugvélin hafi misst mótor.
Flugmennirnir neyddust til þess að lenda vélinni umsvifalaust en hún kom niður á bílastæði
eftir að hafa flogið á rafmagnslínur og endaði ofan nokkrum bílum sem var lagt
í bílastæði meðfram götunni.
Atvikið náðist á öryggismyndavél og má sjá að gangandi vegfarendum var frekar brugðið
við atvikið en flugmennirnir tveir sluppu með skrámur og þá varð enginn fyrir flugvélinni
á jörðu niðri.
Upptaka úr öryggismyndavél:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.