flugfréttir

Önnur flugfélög koma farþegum Germania til hjálpar

- Margir farþegar eru strandaglópar í Evrópu sem áttu bókað flug

6. febrúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 17:40

Airbus A321 farþegaþotur Germania á flugvellinum í Nurenberg í Þýskalandi í gær

Nokkur flugfélög í Evrópu hafa hlaupið undir bagga og boðið þeim farþegum, sem áttu bókað flug með Germania, sem varð gjaldþrota sl. mánudag, sérstök fargjöld til þess að komast aftur heim.

Germania kyrrsetti allan flugflota sinn, sem taldi 37 þotur samstundis og tilkynnt var um gjaldþrotið sl. mánudag, en um 1.100 starfsmenn munu missa vinnuna sína hjá félaginu.

Eurowings hefur meðal annars boðið þeim farþegum, sem eru strandaglópar, að bóka flug til baka með allt að 50 prósenta afslætti og það sama má segja um Condor sem býðir farþegum að bóka flug með helmingsafslætti.

Lufthansa, SWISS International Air Lines og Austrian Airlines bjóða farþegum Germania einnig upp á fargjöld með afslætti og þá hefur Laudamotion tilkynnt að þeir farþegar sem eru strandaglópar á Kanaríeyjum geti komist til síns heima til Berlínar fyrir litlar 10 evrur.

Þá hefur easyJet boðið strandaglópum í Tel Aviv, Hurghada, Mallorca, Paphos og á Kanaríeyjum fargjöld fyrir 110 evrur og Sun Express býður sérstök fargjöld frá Tyrklandi til Þýskalands.

Germania var stofnað árið 1986 og flaug félagið til 60 áfangastaða í Evrópu, Miðausturlöndum og í norðurhluta Afríku og voru um 4 milljónir farþega sem flugu með félaginu í fyrra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga