flugfréttir

Slepptu því að þrífa farþegarýmið milli flugferða

- Þrátt fyrir tilraunir með „þriflaust“ flug þá voru sætisvasar fullir af rusli

6. febrúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 18:11

British Airways segir að það sé ekkert að óttast þar sem farþegarýmið verði áfram þrifið á milli flugferða

British Airways framkvæmdi í seinustu viku tilraunir með hreinlæti í farþegarými flugvéla og var markmiðið að komast að því hvort hægt sé að sleppa því að þrífa farþegarými flugvéla á milli flugferða til þess að spara tíma.

British Airways flaug fjórar „þriflausar“ flugferðir frá London Heathrow til Dublin á Írlandi í byrjun mánaðarins og til baka án þess að farþegarýmið var þrifið fyrir bakaleiðina en flugleiðin á milli London og Dublin er ein annasamasta flugleið Evrópu.

Tilgangurinn var að sjá hvort að hægt var að spara tíma með því að sleppa því að þrífa flugvélina en slíkt gæti komið í veg fyrir seinkanir og aukið stundvísi félagsins.

Airbus A320 þota British Airways

Hefðbundið þrif felur í sér að starfsmenn ganga um borð um leið og síðustu farþegarnir eru farnir frá borði og safna saman rusli og gera klárt fyrir flugið til baka á innan við 15 mínútum.

Engar fleiri „þriflausar“ flugferðir

Í „þriflausu“ flugferðunum voru flugfreyjur og flugþjónar hvött til þess að safna saman eins miklu rusli og hægt var fyrir lendingu og þá var áhöfnin beðin um að taka fram að verið væri að gera tilraunir með því að sleppa þrifum um borð ef farþegar myndu kvarta undan óþrifnaði.

Þrátt fyrir tilraunir til þess að halda flugvélinni hreinni fyrir flugið til baka frá Dublin til London þá blasti við farþegum fullir sætisvasar af rusli, nammibréfum og umbúðum auk þess sem salernin voru óhrein og ruslatunnur fullar.

British Airways hefur staðfest að farþegar þurfa ekki að óttast frekari óþrifnað því aðeins var um að ræða þessar fjórar flugferðir og verða flugvélar félagsins áfram þrifnar á milli flugferða eins og tíðkast hefur hingað til.

Engir farþegar kvörtuðu þrátt fyrir að sætisvasar voru með rusli í er þeir settust um borð í flugvélina







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga