flugfréttir

Þrýstingsmunur sprengdi upp hurð á einkaþotu á flugvelli

- EASA sendir frá sér tilmæli vegna atviks í Finnlandi í fyrra

16. febrúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 12:38

Ljósmynd sem rannsóknarnefnd flugslysa í Finnlandi tók af hurðinni á Gulfstream G150 einkaþotunni á flugvellinum í Kittila í fyrra

Flugmálayfirvöld í Evrópu (EASA) hafa sent frá sér tilmæli og viðvörun vegna hættu á að dyr á flugvélum með þrýstingsjöfnun í farþegarými geti sprungið úr falsinu vegna þrýstingsmunar við vissar aðstæður ef ekki er farið rétt að frágangi eftir lendingu en nokkur slík atvik hafa átt sér stað að undanförnu.

Um er að ræða atvik sem hafa átt sér stað þegar einkaþotum hefur verið lagt en í einu atvikinu, sem átti sér stað í janúar 2018 í Finnlandi, lést flugmaður er hann fékk hurðina í sig er hann var að reyna að opna hana á flugvellinum í Kittila.

EASA segir að ástæða þessara atvika sé sú að þrýstingsmunur var farinn að byggjast upp á farþegarýminu og var munurinn á þrýstingnum í vélinni og á loftþrýstingnum úti orðinn of mikill sem setur mikinn þrýsting á dyrnar.

Rannsóknarnefnd flugslysa í Finnlandi segir að varðandi atvikið í Kittila hafi verið of mikill þrýstingur í farþegarýminu á meðan APU var enn í gangi og hiti í stjórnklefanum var einnig virkur.

Flugmaðurinn var að fara undibúa flug á Gulfstream G150 einkaþotunni til Yekaterinburg í Rússlandi en þegar hann ætlaði að fara inn í þotuna opnaðist hurðin með mjög miklu afli og sprakk úr opinu.

EASA segir að þrátt fyrir að hafa dyrnar lokaðar geti viðhaldið ákjósanlegum hita um borð þá geti það orsakað að þrýstingsmunur fer að safnast upp í farþegarýminu smátt og smátt og sérstaklega ef yfirflæðisventill er lokaður.

Mælt er með því að allir starfsmenn sem koma að rekstri flugvéla, hlaðmenn, flugmenn, flugvirkjar, slökkviliðsmenn og flugvallarstarfsmenn séu meðvitaðir um hættuna.

Fram kemur að mikilvægt sé að sjá til þess að yfirflæðisventill sé opinn og að kerfi, sem losar um þrýsting sem kann að byggjast upp, sé virkur ef dyrnar eru lokaðar á flugvélum sem eru þrýstingsjafnaðar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga