flugfréttir

Ríkisstyrkur fyrir flugi til þriggja staða fellur niður

- Hætt verður að styrkja flug til Þórshafnar, Vopnafjarðar og Hornafjarðar

17. febrúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 15:00

Jetstream flugvél flugfélagsins Ernis á Hornarfjarðarflugvelli

Íslensk stjórnvöld ætla að hætta að styrkja áætlunarflug til þriggja áfangastaða í innanlandsflugi hér á landi og verður niðurgreiðslu á flugsamgöngum til flugvallanna þriggja hætt.

Um er að ræða flug til Vopnafjarðar, Þórshafnar á Langanesi og flug til Hafnar í Hornafirði og kemur fram að frá og með
1. apríl árið 2020 verður hætt að styrkja flug til þessara þriggja bæjarfélaga.

Flugfélagið Ernir hefur flogið sjö sinnum í viku til Hornafjarðar í vetur á meðan norðlenska flugfélagið Norlandair flýgur til Þórshafnar og Vopnafjarðar frá Akureyri.

King Air flugvél Norlandair á flugvellinum á Þórshöfn á Langanesi

Á dögunum var kynnt ný stefna stjórnvalda í samgöngumálum þar sem til stendur að koma á fót nýju samþættu leiðarkerfi í samgöngum innanlands sem samastendur af flugsamgöngum, ferjusiglingum og akstri almenningsvagna á landsbyggðinni.

Með því að binda endi á styrk til flugs til Vopnafjarðar, Þórshafnar og Hornafjarðar mun ríkið ná að spara alls um 150 milljónir króna á ári og er lagt til þess að skipulagðar verði aðrir samgöngumátar til að tengja Vopnafjörð og Þórshöfn við flug til Húsavíkur og Egilsstaða og tengja samgönguleiðir til Hornafjarðar við strætisvagnakerfið.

Í nýútgefinni skýrslu segir að óhagkvæmt sé fyrir stjórnvöld að styrkja tvær tegundir af samgöngumátum til þessara staða og sé nauðsynlegt að nýta fjármagn sem best.

Matthildur Ásmundsdóttir, bæjarstjóri á Hornafirði, segir í fréttum Rúv að þetta komi verulega á óvart þar sem farþegum til Hornafjarðar hefur fjölgað og kemur þessi flugleið best út af þeim flugleiðum sem eru styrktar af ríkinu.

Bæjarstjóri Langanesbyggðar segist vera brugðið við þessi tíðindi og sé þetta þvert á stefnu stjórnvalda um að allir komist til höfuðborgarinnar af landsbyggðinni á innan við þremur og hálfri klukkustund.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga