flugfréttir
Southwest lýsir yfir rekstrarlegu neyðarástandi
- Flugvirkjar tilkynna sig veika í hrönnum
Boeing 737 þotur Southwest Airlines
Bandaríska flugfélagið Southwest Airlines hefur lýst yfir rekstrarlegu neyðarástandi í tilkynningu sem félagið sendi til flugvirkja sinna fyrir helgi.
Félagið segir að óvenju margar þotur í flotanum séu ekki í umferð og eru kyrrsettar á jörðu niðri vegna viðhalds og hvetur
félagið flugvirkja til þess að „mæta til vinnu“ eða þeir eiga á hættu á að verða reknir úr starfi.
Á hefðbundnum degi eru um 20 Boeing 737 þotur í flota félagsins í skoðun en sú tala tvöfaldaðist á hverjum degi í seinustu
viku án þess að neinar athugasemdir voru gerðar við viðhaldsmál þeirra flugvéla. Vegna þessa neyddist félagið til þess að fella niður 100 flugferðir sl. föstudag og seinkun varð á 1.000 flugferðum.
Southwest Airlines hefur átt í kjaraviðræðum við flugvirkja í sjö ár, eða frá árinu 2012, en flugvirkjaflensa hefur verið að ganga
meðal flugvirkja félagsins sl. daga og segir félagið að þeir verði að skila inn læknisvottorði ef þeir telja sig vera veika heima.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.