flugfréttir

Fjallabylgjur og flug undir lágmarksflughæð orsök flugslyss

- Lokaskýrsla vegna flugslyss er ATR flaug í fjallshlíð í febrúar 2018

19. febrúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 18:49

ATR 72-200 flugvél frá Iran Aseman Airlines

Flugmálayfirvöld í Íran hafa birt lokaskýrslu varðandi flugslys sem átti sér stað þann 18. febrúar í fyrra er farþegaflugvél af gerðinni ATR 72-200 fórst í fjalllendi í innanlandsflugi í landinu.

Flugvélin, sem var frá flugfélaginu Iran Aseman Airlines, var í áætlunarflugi frá Teheran til borgarinnar Yasuj þegar vélin hvarf af ratsjá yfir einum stærsta fjallgarði landsins en engin af þeim 66 sem voru um borð í flugvélinni komust lífs af.

Fram kemur að flugmennirnir hafi lækkað flugið undir lágmarksöryggisflughæð í þeim tilgangi að koma sér út úr skýjunum en skömmu síðar varð flugvélin fyrir snörpum fjallabylgjum með þeim afleiðingum að hún fór í ofris sem flugmennirnir náðu ekki að koma sér úr.

Flugvélin hafði fengið leyfi til þess að lækka flugið úr 21.000 feta hæð niður í 17.000 fet og stefna því næst á NDB vita í aðflugsinu.

Er flugmennirnir komust að því að skýjahæðin var í 15.000 fetum freistuðu þeir þess að fara neðar til þess að koma sér úr blindflugsskilyrðum og ísingaraðstæðum en lágmarksöryggishæð á þessum stað er í 15.500 fetum.

Flak vélarinnar í fjallshlíð í Dena-fjöllum í Íran

Flugmennirnir fengu hinsvegar ekki leyfi til þess að fara 2.000 fetum neðar en 17.000 fetin og fóru viðvörunarhljóð í gang í stjórnklefanum í 15 þúsund fetum er vélin var á 200 hnúta hraða með nefið 5° niður á við og með lágmarksafl á hreyflum.

Á þessum tímapunkti var flugvélin að nálgast Dena-fjallgarðinn þar sem hæsti tindurinn á svæðinu rís upp í 13 þúsund feta hæð og var komið mikið niðurstreym og segir í skýrslu rannsóknarnefndarinnar að flugvélin hafði ekki nægilegt afl þar sem lóðréttur vindhraði var 3.200 fet á mínútu.

Mannleg mistök aðalorsök slyssins

Flughraðinn var komin niður í 118 kt og lyftikrafturin var orðin að skornum skammti er flugmennirnir reyndu að ná tökum á lækkuninni en síðar fór stýrishristari („stick shaker“) í gang til að vara við hættu á ofrisi.

Í skýrslu segir að flugmennirnir hefðu átt að ýta stýrinu fram á við, stilla flapa á 15 gráður og auka afl hreyflana en flugstjórinn beindi stýrinu niður en stillti ekki neina flapa á meðan vélin var komin á 4.000 ft lækkunarhraða á mínútu.

Skömmu síðar fór viðvörun í gang (GPWS) sem varar við árekstri við jörðu og brást flugstjórinn við því með að toga í stýrið að sér á sama tíma og vélin þurfti á meiri flughraða á að halda sem fæst með því að ýta stýrinu niður.

Flugvélin flaug inn í fjallshlíð á 13.400 feta hæð í um 8.5 mílna fjarlægð norður af Yasouj-flugvellinum.

Í skýrslu segir að engin ummerki hafi fundist um ísingu á vængjum og er talið að orsök slyssins hafi verið sú að flugvélin var komin í ofris sem flugmennirnir náðu aldrei að koma sér úr auk þess sem fjallabylgjur hefðu gert flugmönnunum erfitt fyrir.

Fram kemur að mannleg mistök hafi orsakað flugslysið að öllu leyti og að halda aðfluginu áfram að flugvellinum í Yasouj á meðan skyggnið var mjög lélegt stangast algjörlega á við verkferla flugfélagsins sem fara fram á að halda til varaflugvallar og lenda þar í staðinn.

Þá kemur einnig fram að skortur hafi verið á samskiptum milli flugmannanna tveggja í stjórnklefanum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga