flugfréttir
Ný Airbus-þota fékk ekki leyfi til að fljúga yfir Íran
- Annað skipti sem þotu Air New Zealand er snúið við vegna pappírsvinnu
Airbus A321neo þota Air New Zealand
Splunkunýrri Airbus A320 þotu sem var í afhendingarflugi frá Airbus í Hamborg á leið til Nýja-Sjálands var gert að snúa við yfir Tyrklandi þar sem í ljós kom að þotan hafði ekki leyfi til þess að fljúga yfir lofthelgi Írans.
Verið var að afhenda þotuna til Air New Zealand og fór þotan í loftið frá verksmiðjunum í Hamborg þann 15. febrúar og
hafði flugvélin verið á flugi í fjórar klukkustundir þegar í ljós kom að leyfi fyrir flugi yfir íranskri lofthelgi var ekki
í höfn en til stóð að millilenda í Muscat í Oman og í Cairns í Ástralíu á leiðinni.
Air New Zealand segir að tímaramminn við afhendinguna hafi verið það knappur að ekki náðist að ganga frá pappírsvinnu
varðandi flug í gegnum lofthelgi Írans.
Flugfélaginu hafði verið tilkynnt um að sennilega myndi leyfi fyrir flugi yfir Íran ná að ganga í gegn á meðan vélin væri
í afhendingarfluginu en það gekk þó ekki upp og var ákveðið að snúa við til Hamborgar.
Þetta er í annað skiptið á einni viku sem að þota á vegum Air New Zealand þarf að snúa við þar sem leyfi var ekki í höfn
en þann 10. febrúar sl. þurfti Boeing 777 þota frá félaginu að snúa við til Aukland yfir Filippseyjahafi eftir að hafa verið í 8 klukkustundir í loftinu á leið til Shanghai vegna pappírsvinnu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.