flugfréttir

Næsta retro-flugvél British Airways verður í litum BEA

- Airbus A319 þota verður máluð í retró-litum um helgina á Írlandi

22. febrúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 11:23

Svona mun næsta flugvél British Airways líta út sem máluð verður í gömlu litunum

British Airways hefur ákveðið að Airbus A319 þota verði næsta flugvél félagsins til þess að verða máluð í gömlum litabúningi líkt og flugvélar félagsins litu út í gamla daga.

Júmbó-þota British Airways hlaut mikla athygli í vikunni er félagið málaði eina Boeing 747-400 þotu í litum BOAC sem var ríkisflugfélag Bretlands þar til það sameinaðist rekstri BEA árið 1974 sem myndaði British Airways eins og við þekkjum félagið í dag.

Ein af Airbus A319 þotum félagsins mun um helgina verða dregin inn í málningarskýli í Shannon á Írlandi þar sem hún verður máluð í litum BEA.

BEA (British European Airways) var stofnað árið 1946 og var félagið eitt stærsta flugfélag Bretlands á sínum tíma í innanlandsflugi og flaug félagið eitt fyrsta farþegaflug heims með túrbínumótor sem flogið var með Vickers Viscount flugvélum.

Vickers Viscount 800 flugvél BEA flugfélagsins

Airbus A319 þotan, sem máluð verður í litum BEA, ber skráninguna G-EUPJ, og verður hún máluð í „Red Square“ búningnum sem BEA kynnti á sjötta áratugnum.

„Það hafa verið ýmsar getgátur um næsta retró-búning svo það er heiður að tilynna næsta litabúning. BEA á stóran sess í sögu British Airways og margir eiga ennþá minningar frá þessum tímum“, segir Alex Cruz, framkvæmarstjóri British Airways.

British Airways ætlar sér að mála enn fleiri þotur í gömlu litum félagsins á næstunni en til að mynda mun fyrsta Airbus A350-1000 þotan, sem British Airways fær afhenta á þessu ári, koma í Chatham Dockyard búningnum.

Boeing 747-400 þota British Airways í litum BOAC







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga