flugfréttir

FAA varar við því að fljúga í gegnum lofthelgi Venesúela

- FAA sendir frá sér viðvörun vegna vaxandi spennu í landinu

23. febrúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 17:56

Flugvél í flugtaki frá Simón Bólivar flugvellinum í Caracas

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa sent frá sér aðvörun þar sem bandarískum flugfélögum er ráðlagt að hafa varann á ef flogið er í gegnum lofthelgi Venesúela vegna vaxandi óstöðugleika.

Fram kemur í upplýsingum til flugmanna (NOTAM) að ástandið í landinu hafi versnað til muna og sé vaxandi spenna í landinu og er bandarískum flugfélögum og flugrekstraraðilum gert að fara með mikilli aðgát og fljúga ekki í gegnum lofthelgi landsins undir 26.000 fetum.

Herinn í Venesúela hefur hafið viðamiklar heræfingar í þeim tilgangi að bregðast við aðgerðum uppreisnarsinna sem sækja hart á Nicolas Maduro, forseta landsins, og er sögð hætta á því að herinn muni ekki leggja sig fram við að aðgreina borgaralegt flug til og frá Venesúela frá öðru flugi.

Flugherinn í landinu býr yfir mörgum flugskeytum sem drífa upp í allt að 25 .000 feta hæð en þrátt fyrir að bandarísk stjórnvöld efast um að herinn í Venesúela hafi nein áform um að nota flugskeyti þá telur FAA að hætta sé á því að flugskeytin gætu komist í hendur uppreisnaraðila ef til átaka kemur.

Þá er talin hætta á því að herinn í Venesúela grípi til þess ráðst að hindra GSM sendingar sem myndi hafa áhrif á fjarskipti og siglingarbúnað flugvéla.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga