flugfréttir
Leyfði flugmanni sem hafði ekki réttindi á þotu að taka flugtakið
- Var með réttindi á King Air flugvél en hafði enga reynslu af Embraer ERJ-190
Slysið átti sér stað þann 31. júlí árið 2018
Flugmálayfirvöld í Mexíkó hafa lýst því yfir að óhæfur flugmaður, sem hafði ekki réttindi á þotu, hafi setið í sæti aðstoðarflugmannsins á Embraer ERJ-190 þotu flugfélagsins AeroMexico og verið við stjórnvölinn er hún fór út af braut í flugtaksbruni í borginni Durango í Mexíkó þann 31. júlí í fyrra.
Flugvélin var í áætlunarflugi á leið til Mexíkóborgar með 97 farþega og fjögurra manna áhöfn innanborðs en hætt var við flugtakið og fór þotan út af brautinni og staðnæmdist í gróðurlendi þar sem hún varð alelda.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Mexíkó hefur komist að því að einn flugmaður hafi verið að ferðast með vélinni
og var honum leyft að fara í stjórnklefann fyrir brottför og settist hann í flugmannssætið hægra megin.
Fram kemur að sá flugmaður hafði fjölhreyflaáritun og leyfi til þess að fljúga flugvél af gerðinni Beechcraft King Air
en hann var í þjálfun á Embraer-þotu en þjálfuninni
var hinsvegar ekki lokið.
Flugmaðurinn hafði nýlokið við bóklega þjálfun á Embraer 190 og var með 64 flugtíma í flughermi á slíka flugvélategund
en hafði 0 flugtíma á þotuna í raunverulegu flugi en hafði 3.300 heildarflugtíma.
Rannsóknarnefndin hefur komist að því að flugmaður fékk að sitja í hægra sætinu í stjórnklefanum á meðan aðstoðarflugmaðurinn fór út að framkvæma fyrirflugsskoðun en er hann kom til baka var hann látinn sitja í „jumpseat“ sæti
sem er ætlað þjálfunarflugstjórum, öðrum áhafnarmeðlimum eða starfsmönnum á vegum flugmálayfirvalda.
Ekki var skipt um sæti fyrir flugtak og og ákvað flugstjórinn að veita honum „þjálfun“ á þotuna með því að leyfa honum
að taka flugtakið en flugstjórinn hafði ekki þjálfunarréttindi og var ekki hæfur til þess að ganga í slíkt hlutverk.
Af þeim 103 sem voru um borð þá komust allir lífs af úr slysinu
Rétt fyrir flugtak gengu óveðursský yfir flugvöllinn í Durango með þrumuveðri og rigningu. Í flugtaksbruninu
kom upp sitthvor flughraðinn fram á mælum flugstjórans og flugmannsins sem gaf til kynna vindhvörf yfir brautinni („wind shear“).
Flugvélin byrjaði að lyftast frá brautinni með hraða upp á 148 hnúta samkvæmt mælum aðstoðarflugmannsins á meðan
mælar hjá flugstjóranum sýndu að hraðinn væri 152 hnútar.
Samkvæmt verklagsreglum AeroMexico er varða vindhvörf í flugtaki er farið fram á að ekki sé hreyft við hjólabúnaði eða flöpum og þeir hafðir í óbreyttri stöðu þar til flugvélin nær 1.500 feta hæð.
Gögn úr flugrita sýna hinsvegar að hjólin hafi verið tekin strax upp þegar flugvélin var aðeins komin í 2 feta hæð yfir flugbraut
á jarðhraða sem nemur 144 kt.
Þotan náði aðeins 11 feta hæð (3.3 metrar) er flughraði fór lækkandi þegar flugstjórinn lýsti því yfir að hann myndi
taka við stjórninni. Þotan hélt áfram að klifra en náði aðeins 30 feta hæð á sama tíma og flughraðinn var komin niður
í 130 hnúta.
Flugvélin skall til jarðar á flugbrautinni í um 2.150 metra fjarlægð frá byrjun brautarinnar og fór út af braut með þeim
afleiðingum að báðir hreyflarnir brotnuðu af.
Rannsóknarnefndin komst að því að flugmaðurinn, sem var ekki hæfur til þess að fljúga Embraer-þotunni, hafi verið
við stjórnina í flugtakinu og alveg þar til 8 sekúndur liðu að þeim tímapunkti þegar flugvélinn skall ofan í brautina.
Þá kom einnig í ljós að rangar upplýsingar um loftþrýsting (QNH) höfðu verið settar inn í flugtölvuna
sem reiknar þá út ranga afkastagetu fyrir flugtakið og flugtaksklifur.
Fram kemur að aðalorsök slyssins megi rekja vindhvarfa í flugtaki en tekið er fram að einnig megi rekja orsökina til þess að óhæfum flugmanni hafi verið leyft að taka sér stöðu aðstoðarflugmanns og honum leyft að vera við stjórn.
Allir þeir 103 sem voru um borð lifuðu slysið af en á fjórða tug slösuðust og var þotan gjörónýt í kjölfarið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.