flugfréttir

Heathrow nær samkomulagi við flugfélög

26. febrúar 2019

|

Frétt skrifuð kl. 22:17

Flugvélar British Airways á Heathrow-flugvellinum í London

Heathrow-flugvöllur hefur náð að gera tímamótasamning við þau flugfélög sem fljúga til flugvallarins sem á bæði eftir að skila flugvellinum milljónum sterlingspunda í tekjur sem verða notaðar í stækkun flugvallarins og á sama tíma mun það skila flugfélögunum hagstæðari kjörum í lendingargjöldum.

Samningaviðræður við flugfélögin á Heathrow hafa staðið yfir í nokkra mánuði en samningurinn mun hvetja flugfélög til þess að fljúga fleiri farþegum til flugvallarins áður en framkvæmdir við stækkun hefjast.

Eins og staðan er í dag þá er sætanýtingin hjá flugfélögunum, sem fljúga til London Heathrow, minni en meðaltalið meðal flugfélaga á heimsvísu samkvæmt tölfræði frá Alþjóðasamtökum flugfélaganna (IATA).

Ef flugfélög ná að fylla betur í sætin og ná meðaltalinu þá er stjórn Heathrow-flugvallar tilbúin til þess að lækka farþegagjöld um allt að 20 prósent m.a.v. hefðbundna hækkun sem væri annars framundan en það mun einnig uppfylla kröfur og væntingar bresku ríkisstjórnarinnar sem vill sjá betri sætanýtingu um borð í hverri flugvél sem fer um flugvöllinn.

Ef bresk flugmálayfirvöld gefa grænt ljós fyrir þessu samkomulagi mun núverandi samkomulag verða framlengt fram í desember árið 2021 og yrði því ekki nauðsynlegt að ræða frekari breytingar sem annars hefðu áhrif á flugfélögin með tilheyrandi hækkunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga