flugfréttir

Rolls-Royce hættir við tillögu um hreyfil fyrir Boeing 797

- Segja tímann of stuttan

1. mars 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:05

Rolls-Royce kom fram með tillögu að hreyflinum UltraFan fyrir Boeing 797

Hreyflaframleiðandinn Rolls-Royce hefur ákveðið að draga sig til hlés varðandi tillögu að nýjum hreyfli fyrir Boeing 797 sem sagt er að Boeing muni kynna formlega til leiks á flugsýningunni í París í sumar.

Rolls-Royce segir að framleiðandinn nái ekki að framfylgja kröfum Boeing er kemur að tímaáætlun og segir framleiðandinn að á svo stuttum tíma verður ekki hægt að ná að þróa nýjan hreyfil ásamt þeim tíma sem fer í prófanir.

Rolls-Royce kom fram með tillögu að nýjum hreyfli sem kallast UltraFan en í gær dró framleiðandinn tillöguna til baka á þeim forsendum að tímaramminn væri of knappur.

Chris Cholerton, forstjóri hreyfladeildar Rolls-Royce, segir að Boeing ætlar sér að vera komið með Boeing 797 á markaðinn um miðjan næsta áratug og hefur árið 2025 oft verið nefnt en sex ár er mjög stuttur tími er kemur að þróun á nýrri flugvél.

„Þetta er rétt ákvörðun hjá Rolls-Royce og einnig besta niðurstaðan fyrir Boeing. Það skiptir öllu máli að geta komið fram með réttu vöruna fyrir viðskiptavini okkar og við viljum ekki fara að vinna að einhverju fyrir Boeing ef við sjáum ekki fram á að halda í við þeirra áætlun er kemur að tíma“.

Þetta skilur Boeing eftir með framleiðendurna Pratt & Whitney og CFM International en Rolls-Royce er þessa daganna undir mikilli pressu á að framleiða og koma frá sér nýjum hreyflum af gerðinni Trent XWB, Trent 7000 og Trent 1000-TEN.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga