flugfréttir

Þyrla með flugmálaráðherra fórst í Nepal

- Flugmaður sagður undir þrýstingi að fljúga þrátt fyrir slæmt veður

1. mars 2019

|

Frétt skrifuð kl. 08:49

Þyrla hefur sig á loft í Nepal

Talið er að flugmaður í Nepal hafi verið undir þrýstingi að fara í þyrluflug þrátt fyrir slæmt veður sem endaði með flugslysi sl. miðvikudag en meðal farþega um borð í þyrlunni var m.a. Rabindra Adhikari, flugmálaráðherra Nepals ásamt yfirmönnum tveggja flugfélaga í landinu.

Auk ráðherrans, sem var einnig ferðamálaráðherra landsins, voru einnig um borð forstjórar og eigendur tveggja flugfélaga, Yeti Airlines og Air Dynasty, og einn af yfirmönnum hjá flugmálayfirvöldum Nepals.

Þyrlan var nýfarin í loftið frá Pathibhara Devi er slysið varð en fram kemur að þyrlan hafi flogið inn í ský og er talið að flugmaðurinn hafi missti stjórn á þyrlunni í blindflugsaðstæðum með þeim afleiðingum að hún flaug á klettavegg í 12.000 feta hæð.

Rabindra Adhikari, flug- og ferðamálaráðherra Nepals

Þyrlan var af gerðinni Eurocopter AS350 og voru sjö um borð og komst enginn lífs af. Þyrlan kom niður til jarðar rétt hjá hofi sem er talið eitt heilagasta hof Hindúa í Nepal.

Þyrluflugmaðurinn hafði tilkynnt um að það væri mjög mikil snjókoma og mjög lágskýjað skömmu fyrir brottför og telja aðrir flugmenn á svæðinu að flugmaðurinn hafi verið undir miklum þrýstingi frá farþegunum um að fara í loftið þrátt fyrir að veðurútlit var alls ekki með hið besta móti.

„Veðrið var alls ekki gott og voru margar flugvélar í áætlunarflugi sem þurftu að lenda á öðrum flugvöllum og þá þurfti einnig að aflýsa flugi víðvegar um Nepal þennan dag“, sagði einn flugmaður í viðtali við The Kathmandu Post.

Tíðni flugslysa í Nepal hefur verið með því hæsta í heiminum en einungis í fyrra voru tíu flugslys skráð í landinu og voru alls 66 manns sem týndu lífi í þeim slysum.

Þyrlan var í eigu flugfélagsins Air Dynasty







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga