flugfréttir

JetBlue stefnir á að hefja flug til Evrópu í sumar

- Á höttunum eftir lendingarplássum í Amsterdam og London

4. mars 2019

|

Frétt skrifuð kl. 08:58

Airbus A321 þota bandaríska flugfélagsins jetBlue

Margt bendir til þess að jetBlue ætli sér að hefja flug yfir Atlantshafið til Evrópu og er sagt að flugfélagið bandaríska reyni nú með öllum ráðum að tryggja sér afgreiðslu- og lendingarpláss í London og Amsterdam.

Orðrómur er uppi um að jetBlue muni tilkynna í apríl um flug til Evrópu með því markmiði að hefja flug yfir hafið á þessu sumri.

Þótt ekkert sé staðfest í þessum efnum þá eru heimildir fyrir því að jetBlue hafi beðið stjórn Schiphol-flugvallarins um að láta félaginu í té lista yfir hvaða flugfélög hafa pláss á Schiphol og hversu mörg en jetBlue hefur sakað Delta Air Lines og Air France-KLM um að reyna að standa í vegi fyrir fyrirhuguðu flugi jetBlue til Amsterdam.

Þá kemur fram að London sé sú borg sem jetBlue hefur mestan áhuga á að hefja flug til og er talið að jetBlue ætli sér að nota Airbus A321LR þotur til London auk annarra áfangastaða í Evrópu.

JetBlue hafið viðræður um að leggja inn pöntun til Airbus í breiðþotur sem talið er tengjast Evrópufluginu en flugfélagið flýgur í dag einungis til áfangastaða innan Norður-Ameríku en þá hefur félagið þónokkur umsvif í flugi til Karíbahafsins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga