flugfréttir

Flugmaðurinn hans Sala lauk ekki atvinnuflugmannsnámi

- „Ábyrgð skipuleggjenda að athuga hvaða réttindi flugmaður hefur“

4. mars 2019

|

Frétt skrifuð kl. 18:38

Flugmaðurinn, David Ibbotson, var 59 ára

Komið hefur í ljós að David Ibbotson, flugmaðurinn sem flaug Piper Malibu PA-46 flugvél með argentínska knattspyrnumanninum Emiliano Sala, sem fórst yfir Ermasundi á leið frá Nantes til Cardiff í lok janúar, var ekki handhafi atvinnuflugmannsskírteinis sem til þarf til að mega fljúga með farþega gegn greiðslu.

Fram kemur að David hafi stundað atvinnuflugmannsnám við flugskólann Cranfield Aviation Training School í Milton Keynes, skammt norður af London, en hætti í náminu þegar hann var búinn með þriðjunginn af bóklega náminu.

David hóf atvinnuflugmannsnámið í desember 2012 en hætti árið 2014 þar sem honum gekk ekki vel í bóklega hlutanum.

Stuart E. Smith, yfirmaður flugskólans, segir að David hafi haft samband við sig árið 2016 varðandi að klára atvinnuflugnámið en hafði samt aldrei gert neitt í því að snúa aftur á skólabekk.

„Það er algengt að miðaldra menn, sem hafa verið einkaflugmannsskírteni, fari í atvinnuflugnám til þess að öðlast CPL réttindi til þess að þiggja laun með því að fljúga með farþega eða gerast flugkennarar“, segir Smith en einnig eru einhverjir sem fara til flugfélaganna.

Martin Robinson, framkvæmdarstjóri félags einkaflugmanna í Bretlandi (AOPA), segir að sá sem skipulagði flugið fyrir Sala, hefði átt að ganga úr skugga um að viðkomandi flugmaður væri hæfur fyrir flugið, með reynslu á flugvélina og þekkingu til þess að meta veðrið á leiðinni.

Flugvélin sem fórst þann 21. janúar var af gerðinni Piper Malibu

Þetta varpar ljósi á þá spurningu hvort að David hafi verið löglegur að fljúga flugið með Sala en fram kemur að hann hafi verið með einkaflugmannsskírteini og ekki með blindflugsáritun en atvinnuflugsskírteinis er krafist til þess að fljúga með farþega og fá greitt fyrir samkvæmt reglugerðum EASA.

Lík fótboltakappans fannst í kjölfar leitar sem framkvæmd var af einkaaðilum að beiðni fjölskyldu Sala sem fór af stað með hópfjármögnun til þess að styrkja leitina en lík David, sem var 59 ára gamall, hefur ekki enn fundist og er hann talinn af.

Emiliano Sala, sem var 29 ára, hafði gert saming við fótboltaliðið í Cardiff skömmu fyrir slysið

Rannsóknarnefnd flugslysa í Bretlandi (AAIB) rannsakar nú hvort að David hafi flogið með Sala og þegið greiðslu fyrir en farþegar mega þó taka þátt í kostnaðinum með því að greiða helming af honum til flugmanns með einkaflugmannsskírteini.

David hafði sagt félaga sínum, skömmu fyrir flugferðina, að hann hafði ekki flogið í langan tíma og væri sennilega orðin smá „ryðgaður“ á Piper Malibu en umboðsmaður Sala hafði reynt að fá annan flugmann til þess að fljúga fótboltakappanum til Bretlands en sá hafði ekki tíma til þess.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga