flugfréttir
Þota frá United Express fór út af í lendingu í Maine
- Fjórir slösuðust minniháttar og þar á meðal annar flugmaðurinn
Nefhjól þotunnar brotnaði af og festist á milli hreyfilsins og búksins
Fjórir hlutu meiðsl eftir að farþegaþota af gerðinni Embraer ERJ-145 rann út af flugbraut í lendingu á Northern Maine Regional flugvellinum í bænum Presque Isle í Maine í Bandaríkjunum nú síðdegis í dag.
Flugvélin, sem er frá CommutAir, var að fljúga fyrir United Express frá Newark-Liberty flugvellinum í New Jersey með 28 farþega innanborðs og þriggja manna
áhöfn en flugvélin hafði hætt við fyrsta aðflugið og farið í fráhvarfsflug.
Flugvélin gerði aðra tilraun til lendingar en lenti mjög harkalega á og sveigði út af brautinni og
staðnæmdist í snjó með þeim afleiðingum að öll hjólastellin féllu saman en nefhjólið endaði vinstri hreyfli þotunnar og festist þar á milli mótorsins og búksins eins og sést á meðfylgjandi myndum.
Einn flugmaður og þrír farþegar slösuðust í atvikinu en meiðsl þeirra eru lítilsháttar en flugvélin
er mikið skemmd.
Slökkviliðið á flugvellinum aðstoðar farþega við að fara frá borði
Töluverð snjókoma var er atvikið átti sér stað klukkan 16:27 í dag að íslenskum tíma og lélegt skyggni auk
þess sem flugbrautarskyggni var mjög lítið.
Flugvélin var 15 ára gömul, smíðuð árið 2004, og hefur hún verið í flota CommutAir frá því árið 2016.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.