flugfréttir
Delta hvetur Boeing til þess að koma með 797 á markað
Ed Bastian, framkvæmdarstjóri Delta Air Lines
Ed Bastian, framkvæmdarstjóri Delta Air Lines, hvetur Boeing til þess að ýta úr vör nýju farþegaþotunni, Boeing 797, sem framleiðandinn stefnir á að koma með á markað árið 2025.
Bastian segir að Delta Air Lines hafi mjög mikinn áhuga á Boeing 797 og sé það næstum öruggt að félagið muni leggja
inn pöntun í þotuna.
„Boeing hefur ekki enn tekið ákvörðun en við vonum innilega að svo verði“, segir Ed Bastian sem tekur fram að Delta
hafi um 200 þotur í flugflota sínum sem þarf að skipta út fyrir nýrri flugvélartegund á næstu árum og þar á meðal
eru 111 Boeing 757-200 þotur sem eru komnar til ára sinna og 56 Boeing 767 breiðþotur.
Boeing sagði að til stæði að taka ákvörðun um Boeing 797 á þessu ári en nýlega ákvað framleiðandinn að skjóta því
á frest til ársins 2020 og er það því alveg óvíst hvort að úr því verði en samt sem áður þá er stefnan að þotan komi
á markað árið 2025 eða eftir tæp sex ár.
Boeing 797 er ætlað að taka frá 200 til 270 farþega með flugdrægi upp á 5.000 mílur (9.700 kílómetra).
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.