flugfréttir
208.000 farþegar flugu með Icelandair í febrúar
Boeing 737 MAX 8 þota Icelandair
Rúmlega 208.000 farþegar flugu með Icelandair í síðastliðnum febrúarmánuði sem er níu prósenta aukning frá því í febrúar 2018 þegar 190.000 farþegar flugu með félaginu.
Sætaframboð var aukið um 8% og þá mældist sætanýtingin í febrúar 75,6 prósent samanborið við 74,3 prósent í sama
mánuði í fyrra.
Farþegar Air Iceland Connect voru um 20 þúsund og fækkaði um 10% á milli ára. Skýrist það aðallega af flugi til Aberdeen og Belfast sem var lagt niður í maí á síðasta ári. Sætanýting nam 66,0% og jókst um 3,4 prósentustig á milli ára.
Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 16% milli ára vegna færri verkefna en á sama tíma fyrir ári. Fraktflutningar jukust um 6%. Seldar gistinætur hjá hótelum félagsins jukust um 20%.
Herbergjanýting var 79,0% samanborið við 84,9% í febrúar 2018. Skýrist það aðallega af lakari herbergjanýtingu á landsbyggðinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.