flugfréttir
Fraktflugið fer hægt af stað á árinu
Boeing 767 fraktþota
Fraktflugsmarkaðurinn virðist fara hægt af stað á þessu ári að sögn Alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA).
Fraktflug dróst saman um 1.8% í janúar samanborið við janúar árið 2018 og er það einn versti mánuðurinn sl. 3 ár.
Framboð á fraktplássi jókst hinsvegar um 4 prósent milli ára í janúar og er það ellefti mánuðurinn í röð þar sem framboðið er meira en eftirspurnin eftir fraktflutningum.
Eftirspurn eftir frakflugi berst ennþá við mótvinda þrátt fyrir að hún hafi aukist sl. ár og spila breytingar í efnahagi heimsins þar mest inn í.
Stærsti markaðurinn í fraktfluginu er í Asíu sem telur 35% af hlutdeildinni og þá kemur Norður-Ameríka í 2. sæti með 23.6% markaðshlutdeild.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.