flugfréttir
KEF í 4. sæti í alþjóðlegri þjónustukönnun flugvalla
- Ofar á listanum en flugvellirnir í Bergen, Alicante, Edinborg og Glasgow
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Keflavíkurflugvöllur er í fjórða sæti yfir þá evrópska flugvelli með 5-15 milljón farþega sem veittu bestu þjónustuna árið 2018.
Þetta er niðurstaðan í Airport Service Quality (ASQ) könnun sem unnin er af Alþjóðasamtökum flugvalla (Airports Council International – ACI). Samtökin hafa nú kynnt verðlaun og niðurstöður í hverjum stærðarflokki flugvalla fyrir sig.
Þjónustukönnunin er framkvæmd á 346 helstu flugvöllum heims, þar af hjá 114 flugvöllum í Evrópu. Farþegar svara spurningum um gæði 33 þjónustuþátta auk þess sem spurt er um heildaránægju með flugvöll.
Merki könnunarinnar
Niðurstöður eru birtar fyrir hvern ársfjórðung og síðan heildarárangur fyrir hvert ár um sig. Keflavíkurflugvöllur hefur jafnan verði í hópi bestu evrópsku flugvallanna frá því að hann tók fyrst þátt í könnuninni árið 2004. Keflavíkurflugvöllur hefur í þrígang verið í fyrsta sæti í sínum stærðarflokki, þ.e. árin 2009, 2011 og 2014.
Nú er Keflavíkurflugvöllur í hópi flugvalla með á bilinu 5 til 15 milljón farþega á ári, ásamt 35 öðrum flugvöllum, og uppfyllti öll skilyrði þjónustukönnunarinnar til að hljóta verðlaun. Keflavíkurflugvöllur mælist með 4,20 í einkunn að þessu sinni en mælt er frá einum og upp fimm.
Fyrir ofan Keflavíkurflugvöll eru flugvellirnir í Sotchi í Rússlandi, Porto í Portúgal og á Möltu. Fyrir neðan Keflavíkurflugvöll eru m.a. flugvellirnir í Björgvin í Noregi, Bristol og Newcastle á Englandi, Alicante á Spáni og Edinborg og Glasgow í Skotlandi.
„Við hjá Isavia erum afskaplega glöð að taka á móti þessari viðurkenningu. Þetta er viðurkenning fyrir þá miklu vinnu sem starfsfólk Isavia á Keflavíkurflugvelli og starfsfólk rekstraraðila þar hefur unnið,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia.
„Þessi hópur hefur lyft grettistaki og veitt ferðafólki á flugvellinum gríðarlega góða þjónsutu þrátt fyrir þrengsli í flugstöðinni vegna mikillar fjölgunar ferðamanna á síðustu árum. Ég óska öllu starfsfólki á Keflavíkurflugvelli til hamingju með þennan glæsilega árangur.“
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.