flugfréttir
Von á að farið verði fram á breytingar á sjálfvirku kerfi á Boeing 737 MAX
FAA segir að Boeing 737 MAX sé örygg flugvél og ekki von á kyrrsetningu
Boeing 737 MAX 8 tilraunarþota Boeing
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið frá sér yfirlýsingu í kjölfar flugslyssins í Eþíópíu í gær þegar Boeing 737 MAX þota frá Ethiopian Airlines fórst skömmu eftir flugtak frá Addis Ababa.
Í nýuppfærðri tilkynningu sem var birt í kvöld segir m.a að á næstunni verði farið fram á að uppfærsla verði
gerð á hugbúnaði á öllum Boeing 737 MAX þotum en FAA segist ekki sjá ástæðu þess að flugrekendur þurfi að kyrrsetja
þær Boeing 737 MAX þotur sem þeir hafa í flota sínum enn sem komið er.
Samkvæmt nýjum fréttum í fjölmiðlum vestanhafs kemur fram að FAA á von á því að gerðar verði breytingar á hönnun á sjálfvirku kerfi á vélunum auk breytinga á viðvörunarmerkjum
um borð án þess að umrætt kerfi sé tilgreint sérstaklega.
Vænta má að um sé að ræða MCAS kerfi sem sér um að
bregðast við óeðlilegu áfallshorni og ofrisi út frá boðum sem koma frá skynjurum framan á skrokki vélarinnar.
Þá kemur fram að Boeing muni einnig uppfæra þjálfunarefni og handbækur í samræmi við þær breytingar sem gerðar verða.
Munu grípa til aðgerða um leið og ástæða þykir
FAA segist fylgjast náið með gangi mála í kjölfar slyssins í gær og sé stöðugt verið að skoða framgang rannsóknarinnar og þá er fylgst með frammistöðu
Boeing 737 MAX véla í flota annarra flugfélaga sem eru á flugi í dag. - „Ef við komum auga á einhver atriði sem varðar öryggi vélanna þá mun
FAA grípa til viðeigandi aðgerða og láta flugrekendur vita“, segir í yfirlýsingu.
Fram kemur að teymi sérfræðinga á vegum FAA sé komið á slysstaðinn í Eþíópíu ásamt rannsóknaraðilum frá
samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) og sé verið að afla gagna á vettvangi.
Mörg flugfélög í Kína og víðar í Asíu hafa kyrrsett Boeing 737 MAX þotuna af ótta við að einhver tengsl séu á milli flugslyssins
í gær og flugslyssins í október er þota sömu gerðar hjá indónesíska flugfélaginu Lion air fórst einnig skömmu eftir flugtak
frá Jakarta.
Ekkert bandarískt flugfélag hefur ákveði að kyrrsetja sínar Boeing 737 MAX þotur en þau flugfélag vestanhafs sem hafa
þotuna í flota sínum eru Southwest Airlines, American Airlines og United Airlines en einhverjar áhafnir hafa lýst yfir
áhyggjum sínum varðandi að starfa um borð í vélunum.
„Það eru einhverjar flugfreyjur og flugþjónar sem hafa lýst því yfir að þau séu smeik við að starfa um borð í 737 MAX vélunum“, segir Lori Bassani, yfirmaður hjá félagi flugfreyja hjá American Airlines en enn hefur engin í áhöfninni
neitað að mæta í flug.
Um 100 Boeing 737 MAX þotur hafa verið kyrrsettar eftir slysið í gær sem nemur um þriðjungs allra þeirra þotna
sem hafa verið smíðaðar af þessari gerð en Boeing gerir ráð fyrir að afhenda um 558 Boeing 737 MAX þotur til viðbótar
á næstu 12 mánuðum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.