flugfréttir
Frumsýningu Boeing 777X slegið á frest
Tölvugerð mynd af Boeing 777X
Boeing hefur ákveðið að fresta frumsýningarathöfn á fyrstu Boeing 777X þotunni sem til stóð að ýta út úr samsetningarsal í Everett vegna flugslyssins í Eþíópíu.
Í yfirlýsingu frá Boeing kemur fram að í ljósi flugslyssins hafi verið ákveðið að fresta athöfn sem fram átti að fara á morgun, 13. mars, þegar sýna átti fyrsta arftaka Boeing 777 þotunnar.
„Við munum finna annað tækifæri síðar til að kynna heiminum fyrir nýju þotunni“, segir í yfirlýsingu frá Boeing en fram
kemur að þetta muni ekki hafa áhrif á framleiðslu og afhendingar á Boeing 777X.
Um er að ræða stærri gerðina, Boeing 777-9, sem mun koma á markað árið 2020 en alls hafa níu viðskiptavinir pantað
344 eintök af Boeing 777X.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.