flugfréttir
Slóu 34 ára gamalt hraðamet yfir Atlantshafið á Socata TBM 930
- Frá New York til Parísar á rúmum 8 tímum á eins hreyfils flugvél
Félagarnir Dierk Reuter og Phil Bozek við komuna til Le Bourget flugvallarins sl. laugardag
Tveir flugmenn settu sl. helgi nýtt heimsmet er kemur að flughraða er þeir flugu yfir Atlantshafið frá New York til Parísar á einshreyfils flugvél af gerðinni Socata TBM 930.
Flugmennirnir, Dierk Reuter og Phil Bozek flugu frá Westchester County flugvellinum í White
Plains í New York til Le Bourget flugvallarins í París á aðeins 8 klukkutímum og 35 mínútum
og slóu þar með 34 ára gamalt heimsmet flugmannsins Chuck Yeager sem sett var árið 1985.
Reuter og Bozek undirbjuggu sig vel fyrir flugið í samráði við flugvélaryfirvöld beggja megin
Atlantshafsins í þeim tilgangi að freista þess að slá metið er varðar flugvélar í flokki C1e sem flokkast undir þær skrúfuþotur sem hafa hámarksflugtaksþunga upp á allt að 6 tonn.
Flugvélin, sem er í eigu Reuter, var útbúin viðbótareldsneytistönkum sem bera 300 gallon af
þotueldsneyti og með því var heildarmagn eldsneytisins um borð fyrir flugtak um 600 gallon sem
gefur flugþol upp á 10 klukkustundir.
Fyrir upphaf leiðangursins yfir Atlantshafið
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) gáfu flugmönnunum heimild fyrir fluginu með flugtaksþunga
upp á 9.500 pund en skráður hámarksflugtaksþungi TMB 930 flugvélarinnar er 7.398 pund. Þá
var flugvélin útbúin með Iridrium Go! staðsetningarbúnaði.
Reuter er fjármálaráðgjafi frá Chicago sem hefur 4.500 flugtíma að baki en hann
hefur meðal annars flogið til Suðurskautslandið á eldri TMB 850
flugvél sem hann átti.
Bozek, sem er frumkvöðull frá Michigan og fasteignasali sem flýgur listflugvélum
í frístundum og safnar herflugvélum, hefur 3.400 flugtíma að baki og þar af 800 flugtíma á flugvél
af gerðinni Socata TBM 900.
Flugvélin var á lofti í 8:39 klukkustundir
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.