flugfréttir

Bandaríkin kyrrsetja 737 MAX

13. mars 2019

|

Frétt skrifuð kl. 19:01

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, á blaðamannafundi nú síðdegis

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, lýsti því yfir rétt í þessu að Hvíta Húsið hafi fari fram á að Boeing 737 MAX þotur í Bandaríkjunum verði líka kyrrsettar en bandarísk flugfélög á borð við Southwest Airlines, American Airlines og United Airlines, eru þau einu sem hafa enn verið að fljúga 737 MAX í kjölfar flugslyssins í Eþíópíu.

Fram kemur að þetta hafi verið ákveðið í ljóssi nýrra upplýsinga sem benda til þess að orsök flugslyssins hjá Ethiopian Airlines sé sennilega af svipuðum toga og flugslyss Lion Air í október 2018.

„Boeing er magnað fyrirtæki. Þeir eru að vinna hörðum höndum að því að finna orsök slyssins. En á meðan það er ekki búið að því þá verða þoturnar kyrrsettar“, sagði Trump meðal annars.

Kyrrsetning Boeing 737 MAX um allan heim hefur beint spjótunum að því hversu náin tengsl eru milli Boeing og ríkisstjórnar Bandaríkjanna þar sem flugfélög vestanhafs hafa ekki kyrrsett sínar þotur en Kanada tilkynnti hinsvegar nú síðdegis að flugmálayfirvöld þar í landi hafi kyrrsett sínar flugvélar.

„Flugmönnum hefur verið gert viðvart, flugfélögum hefur verið gert viðvart. Flugfélög eru sammála þessu. Öryggi almennings í Bandaríkjunum og allra er það sem skiptir mestu máli“, bætir Trump við.

Fram kemur að allar þær Boeing 737 MAX þotur, sem eru á flugi í augnablikinu í Bandaríkjunu, verði kyrrsettar um leið og þær lenda á áfangastað.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga