flugfréttir
Færri en 20 Boeing 737 MAX þotur á flugi
- Eftir kl. 22:33 verður ekki mikið af Boeing 737 MAX sjáanlegar í bili
Nokkrar Boeing 737 MAX þotur að klára flug frá Karíbahafinu til Bandaríkjanna í kvöld
Aðeins voru 23 flugvélar af gerðinni Boeing 737 MAX í loftinu í öllum heiminum í kvöld kl. 20:34 samkvæmt Flightradar24.com en kl. 20:50 hafði þeim fækkað niður í 18 þotur.
Allar þoturnar voru á flugi í Norður-Ameríku, 17 af gerðinni Boeing 737 MAX 8 og sex af gerðinni
Boeing 737 MAX 9.
Fjórar þotur eru á vegum American Airlines, 8 á vegum Southwest Airlines,
þrjár frá Air Canada, tvær frá flugfélaginu WestJet, átta frá United Airlines og ein Boeing 737 MAX
frá Copa Airlines.
Allar þoturnar eru að ljúka sínu síðasta áætlunarflugi í bili og verða þær kyrrsettar líkt og allar aðrar
Boeing 737 MAX þotur í heiminum í kjölfar flugslyss Ethiopian Airlines.
Allt bendir til þess að síðasta Boeing 737 MAX flugið í háloftunum í bili sé flug Southwest Airlines, flug WN2569, frá
Oakland í Kaliforníu til Newark-flugvallarins í New Jersey en kl. 20:28 var hún stödd yfir Kansas og
á eftir 2 klukkustundir af fluginu.
Skjáskot af Flightradar24.com um 20:30 í kvöld með síu sem stillt var á Boeing 737 MAX 8
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði að búið væri að fyrirskipa kyrrsetningu á öllum Boeing 737
MAX þotum í flota bandarískra flugfélaga og myndu þær klára síðustu áætlunarflugin áður en þær verða kyrrsettar.
Áætlað er að flug WN2569 muni lenda í Newark klukkan 22:33 í kvöld að íslenskum tíma en eftir
það má ekki búast við að sjá mikið af Boeing 737 MAX þotum á Flightradar.
Síðustu Boeing 737 MAX flugin eru:
Boeing 737 MAX 8
American Airlines / Port of spain - Miami
American Airlines / St. Thomas - Miami
American Airlines / Bridgetown - Miami
Air Canada / West Palm Beach - Toronto
Southwest / Phoenix - Philadelphia
Air Canada / West Palm Beach - Toronto
Southwest / Las Vegas - Chicago
Southwest / Oakland - Newark
Southwest / Milwaukee - Phoenix
WestJet / Winnipeg - Kelowna
WestJet / Vancouver - Kelowna
Air Canada / Palm Springs - Vancouver
Boeing 737 MAX 9
Copa Airlines / Miami - Panama City
United Airlines / San Salvador - Houston
United Airlines / Houston - San Francisco
United Airlines / Houston - Los Angeles
United Airlines / Houston - San Francisco
United Airlines / Houston - Los Angeles
United Airlines / Los Angeles - Kailua Kona (Hawaii)
United Airlines / Los Angeles - Kahului
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.