flugfréttir
Þriðja MC-21 tilraunarþotan flýgur sitt fyrsta flug
MC-21-300 þotan hefur sig á loft í morgun í Irkutsk í Rússlandi
Þriðja MC-21-300 tilraunarþota rússneska flugvélaframleiðandans Irkut hóf sig á loft í fyrsta sinn frá verksmiðjunum í Irkutsk í dag.
Jómfrúarflugið stóð yfir í eina klukkustund og 30 mínútur og fór vélin upp í 11.400 feta hæð og náði
mestum hraða upp á 240 hnúta í fluginu.
Tveir tilraunarflugmenn voru um borð í flugvélinni sem kemur með innréttuðu farþegarými auk búnaðar
til mælinga og prófanna og segir framleiðandinn að fyrstra flugið hafi gengið að óskum.
Fyrsta MC-21 þotan flaug sitt fyrsta flug þann 28. maí árið 2017 og ári síðar, í maí 2018, flaug önnur tilraunarþotan
sitt fyrsta flug en þriðja þotan verður til sýnis á MAKS 2019 flugsýningunni í Moskvu sem fram fer í ágúst í sumar.
„Þessi flugvél mun gera okkur kleift að sýna hana fyrir almenningi og mögulegum viðskiptavinum og er
þetta samkeppnishæfasta þota sem Rússar hafa smíðað“, segir Denis Manturov, iðnaðarráðherra Rússlands.
Samsetning stendur nú yfir á fjórðu tilraunarþotunni sem mun bætast í hópinn í flugprófunum síðar á þessu ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.