flugfréttir
Von á bráðabirgðarskýrslu innan 30 daga
Flugritarnir bornir inn í höfuðstöðvar rannsóknarnefndar flugslysa í Frakklandi sl. helgi
Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fram kemur að von sé á bráðabirgðarskýrslu innan 30 daga vegna flugslyssins í Eþíópíu er Boeing 737 MAX þota frá Ethiopian Airlines fórst skömmu eftir flugtak þann 10. mars sl.
Í yfirlýsingunni kemur fram að verið er að hala niður gögnum úr bæði flugritanum og hljóðritanum og hefur komið
fram að fyrstu vísbendingar benda til þess að margt líkt sé með slysinu í Eþíópíu og slysinu í Indónesíu er þotu
sömu gerðar frá Lion Air fórst skömmu eftir flugtak.
Flugslysanefnd Eþíópíu og samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) vinna einnig að rannsókninni.
Flugmálayfirvöld í Evrópu (EASA) hafa lýst því yfir að Boeing 737 MAX þotur í flota evrópskra flugfélaga muni ekki hefja sig
á loft fyrr en EASA sé búið að fara vandlega yfir hugbúnaðaruppfærsluna sem Boeing ætlar sér að vera tilbúið með eftir 10
daga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.