flugfréttir
Nýtt flugfélag í Taívan pantar sautján A350 þotur
- STARLUX Airlines ætlar sér að verða besta flugfélag í heimi
Frá undirritun samningsins á Airbus A350 þotunum sautján í Taipei í Taívan
Taívanska flugfélagið STARLUX Airlines hefur lagt inn pöntun til Airbus í sautján Airbus A350 breiðþotur; tólf af gerðinni Airbus A350-1000 og fimm af gerðinni A350-900.
STARLUX Airlines er nýtt flugfélag í Taívan sem hefur enn ekki hafið starfsemi sína en félagið
ætlar að nota flugvélarnar í áætlunarflugi frá höfuðborginni Taipei til áfangastaða
í Bandaríkjunum og í Evrópu.
K.W. Chang, stofnandi og forstjóri STARLUX Airlines, segir að stefna flugfélagsins sé að
verða besta flugfélag í heimi og muni splunkunýjar Airbus A350 þotur gera félaginu kleift
að ná því markmiði.
Flugfélagið á einnig von á tíu Airbus A321neo þotum frá Airbus og mun félagið því hefja
flugrekstur með 27 nýjar þotur.
Tölvugerð mynd af Airbus A450-1000 þotu í litum STARLUX Airlines
STARLUX Airlines var stofnað árið 2016 og stóð til að félagið myndi byrja að fljúga árið 2018
en talið er að það muni dragast fram til lok þessa árs.
Chang sagði hinsvegar í janúar á þessu ári að gert sé ráð fyrir að félagið muni fljúga fyrsta
áætlunarflugið í janúar árið 2020.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.