flugfréttir
Nafni Laudamotion breytt og einfaldað í „Lauda“
Airbus A320 þota Lauda
Ryanair, móðufélag austurríska flugfélagsins Laudamotion, hefur ákveðið að sleppa hluta úr nafni flugfélagsins, „motion“, og mun félagið því einfaldlega heita Lauda.
Það var milljónamæringurinn, Niki Lauda, fyrrum Formúla 1 kappaksturskappi, sem stofnaði Laudamotion er hann fékk að kaupa aftur austurríska
flugfélagið Niki, sem hann stofnaði sjálfur árið 2003 en Laudamotion var ekki búið að vera lengi til er Ryanair kom og keypti næstum allan hlutinn í rekstri
Laudamotion í mars í fyrra.
Andreas Gruber, framkvæmdarstjóri Lauda, segir að með nafnabreytingunni er vonast
til að nafn félagsins verði einfaldara gagnvart viðskiptavinum er kemur að markaðssetningu.
Flugfélagið heitir því nú sambærilegu nafni og Lauda Air, sem Niki Lauda stofnaði einnig, árið
1979 en það félag sameinaðist rekstri Austrian Airlines árið 2003.
Lauda hefur í dag ellefu þotur í flotanum af gerðinni Airbus A320 og Airbus A321 en sautján
Airbus A320 þotur munu bætast við í flotann til viðbótar á næstu misserum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.