flugfréttir
450 flugmenn í Rússlandi sviptir réttindum sínum í fyrra
- Tveimur rússneskum flugskólum var lokað árið 2018
Rússnesk flugmálayfirvöld hafa framkvæmt úttektir meðal þjálfun flugmanna og rannsakað starfsemi flugskóla í landinu
Um 450 atvinnuflugmenn í Rússlandi voru sviptir réttindum sínum til farþegaflugs í fyrra eftir rússnesk flugmálayfirvöld gerðu úttekt á öryggismálum og þjálfun meðal rússneskra flugmanna.
Þá voru um 160 flugmenn sem voru sviptir skírteininu sínu auk þess sem tveimur flugskólum
í Rússlandi var lokað á meðan rannsókn á flugöryggi í landinu hefur staðið yfir.
Mörg rússnesk flugfélög hafa verið frekar aftarlega á merinni er kemur að flugöryggi þrátt fyrir að öryggi í flugi
í landinu hafi skánað eilítið á milli ára samkvæmt tölfræði.
„Til að draga úr flugslysum þar sem mannleg mistök er talin orsökin þá hafa farið fram úttektir
á starfsháttum í flugskólum í Rússlandi og þjálfun flugmanna og hafa 425 flugmenn verið leystir frá störfum
á meðal rannsókn hefur farið fram“, segir Yuri Chaika, formaður rússneskra flugmálayfirvalda.
Rannsókn á flugskólum í Rússlandi hófst fyrst árið 2013 í kjölfar flugslyss er Boeing 737-500
þota frá Tatarstan Airlines fórst á flugvellinum í Kazan í Rússlandi.
Við rannsókn slyssins kom í ljós að flugstjóri flugvélarinnar hafi verið með falsað
atvinnuflugmannsskírteini og ekki haft nægilega þjálfun á flugvélina.
Mikil gróska hefur verið í flugnámi í Rússlandi í kjölfar þess að mun fleiri íbúar landsins
ferðast nú með flugi en flugskólum í landinu var fjölgað fyrir sex árum síðan til þess
að útskrifa fleiri flugmenn til þess að fjúga nýjum og vestrænum þotum sem hafa verið að
bætast við í flugflota Rússa.
Hinsvegar kom í ljós að rússneskir flugskólar hafa misnotað stöðu sína og verið undir þrýstingi í útgáfu á flugskírteinum til flugmanna sem hafa átt langt í land með að vera orðnir hæfir flugmenn.
Þess má geta að um 300 rússneskir flugmenn misstu flugmannaskírteini sín árið 2017 í sambærilegum aðgerðum flugmálayfirvalda og þá var þremur flugskólum lokað í landinu það árið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.