flugfréttir
Trump vill fyrrum flugstjóra hjá Delta sem yfirmann hjá FAA
Daniel Elwell, núverandi yfirmaður FAA (til vinstri) og Steve Dickson, fyrrum flugstjóri hjá Delta Air Lines (til hægri)
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að Hvíta Húsið hafi áform um að skipta út yfirmanna hjá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) og láta Daniel Elwell víkja fyrir fyrrum flugstjóra hjá Delta Air Lines, Steve Dickson að nafni.
Dickson var yfirmaður yfir rekstrardeild bandaríska flugfélagsins Delta Air Lines og myndi hann taka við formannsstöðu
Elwell sem hefur aðeins setið í 14 mánuði sem yfirmaður FAA en hann tók við embættinu af Michael Huerta í janúar
árið 2018.
Steve Dickson sá um öll öryggismál hjá Delta Air Lines og var yfirmaður yfir flugrekstrardeild í höfuðstöðvum
félagsins í Atlanta þar til hann lét af störfum í október í fyrra en hann er var einnig flugstjóri hjá félaginu og flaug Boeing 757 og Boeing 767 þotum félagsins til starfsloka.
Ef Dickson tekur við embætti yfirmanns FAA mun hans fyrsta verkefni án efa vera að komast að því hvert hlutverk bandarískra
flugmálayfirvalda var þegar flughæfnisvottun var gefin út fyrir Boeing 737 MAX þotuna en samgönguráðuneyti
Bandaríkjanna ætlar að fara fram á rannsókn á málinu í kjölfar tveggja flugslysa.
Dickson mun þjóna embætti FAA í 5 ár ef hann verður gerður að yfirmanni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.