flugfréttir
Einkaflugmaður dæmdur í 3 ára fangelsi í kjölfar flugslyss
- Var 180 kílóum of þung í flugtaki - Braut sex lög og reglugerðir
Robert Murgatroyd mætir fyrir rétti þann 20. febrúar sl. er hann var fundinn sekur um margvísleg brot í kjölfar flugslyssins árið 2017
52 ára einkaflugmaður í Bretlandi hefur verið vistaður í fangelsi þar í landi vegna vítaverðs gáleysis við stjórnun flugvélar sem endaði með flugslysi í september árið 2017.
Flugmaðurinn, Robert Murgatroyd, braut margvísleg lög og reglugerðir er kemur að flugi en í
fyrsta lagi hafði hann flogið með farþega án leyfis, var ekki með tilskilna pappíra meðferðis,
og gerði ekki þyngdarútreikninga fyrir flugið og fór flugvél hans í loftið 181 kílói yfir
hámarksflugtaksþunga og þar að auki var flugvélin ekki tryggð.
Hámarksflugtaksþyngd Piper PA-28 samkvæmt Piper-framleiðandanum er 2.150 lbs
en í ljós kom að flugvélin var 2.550 lbs með farþegum, eldsneyti og öðru um borð er hún fór í loftið.
Robert hafði rukkað hvern farþega um 77.000 krónur fyrir að fljúga með þá
í fuglaskoðunarferð frá Barton-flugvellinum nálægt Manchester.
Þar sem flugvélin var allt of þung þá missti hún hæð með þeim afleiðingum að Robert missti stjórn
á flugvélinni sem brotlenti á akri nálægt M62 hraðbrautinni.
Að sögn lögreglu þá hafði Robert sett líf fjölda fólks í hættu þar sem hann ætlaði að ná sér inn
skjótum gróða með því að fljúga þremur farþegum til eyjunnar Isle of Barra, norðvestur af Skotlandi
á Piper PA-28 Cherokee flugvél.
Flak flugvélarinnar á akri nálægt M62 hraðbrautinni skammt undan Manchester þann 9. september árið 2017
Flugvélin brotlenti skömmu eftir flugtak með þeim afleiðingum að einn farþegi um borð hlaut
höfuðáverka og áverka á handlegg á meðan annar farþegi skarst í andliti en flugmaðurinn
sjálfur nefbrotnaði.
Í skýrslu kemur fram að Robert hafi verið með einkaflugmannsskírteini sitt í gildi
en hann var ekki með það meðferðis um borð eins og reglur kveða á um og þá neitaði hann að svara
spurningum varðandi tilgang ferðarinnar á vettvangi.
Saksóknari í málinu sagði við réttarhöld í Manchester að gjörðir Roberts hafi verið „mjög
heimskulegar“ sem endurspegluðust af græðgi og kæruleysi.
Robert Murgatroyd var dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar og eru ákæruliðirnir
alls sex talsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.